Auglýsing

Family

lög

16. september 2007 klukkan 20:15

Sett lög              =         lög
Stjórnarskráin     =         þjóðlög
reglugerðir          =         örlög

þór hauksson reykdal
1 athugasemd

Svart te

11. september 2007 klukkan 10:42

Samkvæmt könnun sem ég fann hjá Vigdísi formanni, og á að segja til um hverskonar kaffi ég er... þá er ég ekki einu sinni kaffi, heldur svart Te í heitu vatni !

Sem er kannski ágætt því ég ætla að sérhæfa mig í skattarétti.....sem er rosalega te-legt og boring :)

þór hauksson reykdal
Engin athugasemd

- Blogg í einni setningu -

26. janúar 2007 klukkan 19:40








Málsvarnarlaun greiðist úr ríkissjóði sem hér segir:  Gesti Jónssyni hrl., 15.000.000 króna + 1.245.000 krónur.







þór hauksson reykdal
2 athugasemdir

Blogg í einni setningu - Það sem ég er að íhuga þessa stundina í hnotskurn....

24. janúar 2007 klukkan 03:32





Völd eru takmörkuð gæði









-
þór hauksson reykdal
2 athugasemdir

Baalbek - Heimilisþraut fyrir verkfræðinga og aðra snillinga

20. október 2006 klukkan 01:55
Þessi steinn er 1.200 tonn á þyngd.  Eins og sést var hann ekki alveg kláraður og er enn fastur í berginu.  Eins gott hugsið þið, vegna þess að það yrði örugglega vesen að færa hann til.  Þyrfti ansi stóran vörubíl að keyra með hann á áfangastað. 

En nú er málum háttað á þann veg að hann var höggvinn út fyrir að minnsta kosti 2000 árum síðan, jafnvel löngu, löngu fyrr en það.  Jafnvel betra, hugsið þið, það hefði verið miklu erfiðara að færa hann til fyrir 2000 árum síðan, þar sem öngvir vörubílar voru til !  Miklu betra að skilja hann bara eftir þarna og gera minni steina.








En málið er náttúrulega miklu skemmtilegra en bara að þessi steinn hafi verið skilinn eftir.  Því ekki mjög langt í burtu er musteri eitt sem Rómverjar eru sagðir hafa byggt til heiður Guði sínum Júpiter.




Þar eru fleiri svona stórir steinar.  Nánar tiltekið þrjú stykki.  Allir vel yfir 1.000 (þúsund) tonn hver.  Þeir voru væntanlega teknir úr sömu námu og hinn sem er þar enn, þeim dröslað yfir smá hæð sem er þarna og að byggingarstaðnum, þar sem þeim var haganlega komið fyrir á sínum stað ofan á 800 tonna steinum.  Sumir fornleifafræðingar telja Rómverja hafa sett þessa stóru steina þarna, allt í einu fattað að þetta væri kannski fullmikil undirstaða fyrir tveggja hæða musteri og ákveðið að það væri nóg að hafa þjappaðan jarðveg undir restina af musterinu.  Þetta væri hentug leið út úr vandamálinu nema hvað engar heimilidir eða gögn eru til frá þessum tíma sem segja að rómverjar hafi gert þetta, og trúið mér, ef þú ert keisarinn Júlíus Cesar og getur byggt veggi með yfir þúsund tonna steinum, þá lætur þú sko skrá það í öllum skruddum sem til eru í veldi þínu.  Auk þess, ef Rómverjar hefðu haft getu til þess að höndla þessi ferlíki hefðu þeir væntanlega aldrei liðið undir lok og umlukt Rómarborg með svona steinum.

Munnmælasögur sem íbúar á svæðinu hafa varðveitt kynslóðum saman segja að þessir steinar hafi verið kubbaðir af risanum Nimrod sem talað er um í biblíunni rétt um eða eftir syndaflóðið fræga sem setti margt úr skorðum, en Nói Albínói slapp eins og allir vita (já hann var alvöru Albínói! það er í Bók Enoks sem er biblíurit sem seinna var svo tekið út úr gamla testamentinu vegna þess að það passaði ekki inn í það )  ....to be continued...



þór hauksson reykdal
3 athugasemdir

Einhverfa og tilfinninga-greind

20. september 2006 klukkan 16:49


Ég las áhugaverða grein um daginn á skoska fréttamiðlinum The Scotsman sem fjallaði um meðhöndlun á einhverfum börnum og hvernig hegðan þeirra gjörbreyttist við inntöku á heilsugerlum (probiotic bacteria, s.s. Acidophilus. Mjólkursýrubakteríur t.d. Lactobacillus acidophilus, Bifidobacterium bifidum og Lactobacillus bulgaricus - hægt er að kaupa þetta í apótekum á Íslandi og sumt af þessum gerlum er í mjólkurvörum t.d. LGG).

Tilraunin fór reyndar út um þúfur vegna þess að foreldrar barnanna sem höfðu fengið heilsugerlana neituðu að láta börnin hætta á þeim, vegna þess hversu mikið börnunum hafði farið fram. Í greininni kemur einnig fram einhverf börn greindust oft með clostridia bacteríur sem geti framleitt eitrað efni í líkamanum (neuro- toxin).

Þetta minnti mig á nokkuð sem Meltingarfærasérfræðingur sem starfar hér á Akureyri sagði við mig fyrir nokkrum árum síðan um að í líkamanum væru í raun tveir heilar. Þá meinti hann að í höfðinu væri einn og í meltingarfærunum annar. Þó svo þetta sé einföldun þá er meiningin sú að meltingafærin og miðtaugakerfið eru flókið fyrirbæri sem eru undirstaða líkamans og þróaðist í langan tíma á undan þeirri týpu af heila sem við brúkum í dag.

Ekki er erfitt að geta sér til um að áður en mannskepnan fór að hugsa abstract hugsanir og framleiða töfrateninga, þökk sé þróuðu heilabúi þá, hafa tilfinningar verið til staðar, en sumir vilja einmitt meina að tilfinningar eigi rætur að rekja niður í hina háþróuðu efnaverksmiðju sem eru meltingarfærin.

Einhverfa hefur einnig verið nefnd Ofurnæmni. Það virkar þá þannig að barn er mjög viðkvæmt fyrir t.d. hljóðum, snertingu, lykt og/eða jafnvel einhverju sem foreldrar skynja ekki . Ef barn með slíka næmni gjörbreytist til hins betra við inntöku á heilsugerlum, sem verka í meltingarfærunum þá, að mínu mati rennir það stoðum undir þá kenningu að meltingarfærin gegna jafnvel stærra hlutverki en við gerum okkur grein fyrir.

Það væri líka saga til næsta bæjar ef það kæmi svo í ljós að einhverfa væri bara bacteríu sýking.



Hér er greininn:

Treatment with 'friendly' bacteria could counter autism in children

IAN JOHNSTON SCIENCE CORRESPONDENT

PROBIOTIC bacteria given to autistic children improved their concentration and behaviour so much that medical trials collapsed because parents refused to accept placebos, a scientist revealed yesterday.

The effect of the bacteria was so pronounced that some of the parents taking part in what was supposed to be a blind trial realised their children were taking something other than a placebo. A number then refused to give their children the placebo when they were due to switch, resulting in the collapse of the trial.

Glenn Gibson, a microbiologist who ran the study of 40 autistic children aged between four and eight, said this meant it was difficult to draw any firm conclusions and he is planning to carry out further research.

However, he said parents had told him the probiotic bacteria was having a beneficial effect, resulting in "better concentration and better behaviour".

One parent said it was "heartbreaking" to have to stop their child taking it.

"It was really challenging for us and the parents. I'd really like to go back to it and do it in a better way, with perhaps more professional help from people who know how to deal with autistic children," said Prof Gibson.

"The trial ultimately failed because of the large number of drop-outs. About half the kids dropped out. Some of the parents worked out their child was on the test and didn't want to move on to the placebo."

Autistic children often suffer bowel conditions and Prof Gibson said a previous study had found high levels of a "bad" bacteria called clostridia in the gut.

The probiotic was then designed to reduce the levels of clostridia and promote "friendly" bacteria instead to see what effect this would have.

Prof Gibson, from Reading University, said the children appeared to show fewer signs of autism when taking the probiotic supplement, which was given in a powder once a day.

"Very subjectively, we asked the parents to fill in diaries about the mood of the children. We got very positive feedback generally," he said.

He said that certain kinds of clostridia produced neuro- toxins, which potentially could be the cause of autism or a contributory factor.

However, he said this was speculation and the apparent improvement could also simply be because the children had felt better.

"If your gut is not behaving yourself, you feel rough," Prof Gibson said.

The first bacteria in the gut is received from the mother during birth and then comes from the outside environment, with diet playing an important role.

"They [infants] may be under medication for an infection and that may have an effect," Prof Gibson said.

"There are all sorts of different factors that may affect that [the bacterial make-up of the gut]."

There was a scare over widely discredited claims that autism was linked to the MMR - measles, mumps and rubella - vaccine given to children.

Asked whether he thought childhood vaccines could have an effect, Prof Gibson said: "No. I don't think there is anything in this MMR business at all."

It is estimated that 535,000 people in the UK have some kind of autism, including a milder form called Asperger's Syndrome.

The condition affects four times as many boys as girls for reasons that are not clearly understood.

A spokeswoman for the National Autistic Society (NAS), the UK's leading charity for people with the condition and their families, said it followed new research into possible treatments with great interest.

She went on: "There is anecdotal evidence that certain vitamins and diets do have benefits for some people with autism. However, a great deal more research remains to be done in this area.

"The NAS looks forward to seeing the results of the further research that Professor Gibson hopes to conduct in the future."

She said that "rigorous scientific evaluation" was necessary to gauge the effects of any new treatment.

A whole range of therapies had been tried in the past, from medication and behavioural therapy to aromatherapy and swimming with dolphins, with varying degrees of success.

 

 

vefslóð:

http://news.scotsman.com/scitech.cfm?id=1308572006

þór hauksson reykdal
Engin athugasemd